Collabora Office 24.04 Help
Skilgreindu sérsniðna liti og bættu þeim á á Sérsniðið litaspjaldið.
Veldu Sníða - Flötur, smelltu á Flötur-flipann og ýttu svo á Litir-hnappinn. Þá birtist tafla með forsniðnum litum.
Sérsniðnir litir eru vistaðir á Sérsniðið litaspjaldið.
Smelltu á lit í töflunni sem líkist þeim lit sem þú vilt skilgreina. Þú getur valið þennan lit úr hverju því litaspjaldi sem er tiltækt á Litir svæðinu til vinstri eða úr Nýlegir litir í listanum fyrir neðan litatöfluna. Liturinn birtist í forskoðunarreitnum Nýtt hægra megin við gluggann.
Smelltu á Plokka hnappinn til að opna Veldu lit gluggann.
Collabora Office notar einungis RGB-litakerfið til að prenta í lit. RGB-gildi valins litar eru birt fyrir neðan forskoðunarreitinn.
Ýttu á Bæta við hnappinn til að bæta sérsniðna litnum viðSérsniðið litaspjaldið. Samskiptagluggi þar sem beðið er um nafn á litinn mun birtast. Settu inn eitthvað einstakt heiti sem er frábrugðið öðrum litum í Sérsniðið litaspjaldinu.
Til að fjarlægja lit af Sérsniðið litaspjaldinu, skaltu velja Sérsniðið litaspjaldið á Litir-svæðinu, velja litinn sem á að eyða og smella svo á Eyða.