Collabora Office 21.06 Help
Hjálparvalmyndin gerir kleift að ræsa og stilla hjálparkerfi Collabora Office.
Opnar aðalsíðu Collabora Office hjálparinnar fyrir viðkomandi forrit. Þú getur flett í gegnum hjálparsíðurnar, skoðað yfirlit eða leitað eftir hugtökum eða öðrum texta.
Collabora Office hjálp
Opnar síðuna í hjálparskjölunum í vafranum, þar sem notendur geta sótt, lesið eða keypt handbækur skrifaðar af samfélaginu fyrir Collabora Office.
Opnar leiðbeiningasíðuna í vafranum. Notaðu þessa sðu til að spyrja spurninga um Collabora Office. Ef um fyrirtækjastuðning með þjónustusamningi er að ræða, ætti að skoða síðuna um fyrirtækjastuðning við Collabora Office.
Opnar samskiptaglugga í netvafra þar sem notendur geta tilkynnt um galla í hugbúnaði.
Öryggishamur virkar þannig að Collabora Office ræsist tímabundið með fersku notandasniði og án þess að styðjast við vélbúnaðarhröðun. Þetta gerir oft kleift að endurheimta Collabora Office uppsetningu sem hefur eitthvað bilað.
Birtir glugga með notkunarleyfi og lagatæknilegum upplýsingum.
Birtir skjalið CREDITS.odt sem inniheldur lista yfir þá einstaklinga sem gefið hafa framlög í grunnkóða OpenOffice.org (framlög sem síðan runnu inn í grunnkóða LibreOffice) eða til LibreOffice síðan 28.09.2010.
Virkjaðu internettengingu fyrir Collabora Office. Ef þú þarft á milliþjóni að halda, hakaðu við Collabora Office milliþjónsstillingarnar í Collabora Office - ValkostirVerkfæri - Valkostir - Internetið. Veldu svo Athuga með uppfærslur til að athuga með nýjar uppfærslur fyrir forritin.
Birtir almennar upplýsingar um forritin eins og um útgáfunúmer og höfundarrétt.