Eiginleikar Collabora Office Draw

Þú getur notað Collabora Office Draw til að gera jafnt einfaldar sem flóknari teikningar og flutt þær út eða vistað á mörgum algengum myndsniðum. Þú getur einnig sett töflur, gröf, formúlur og annað sem búið er til í öðrum Collabora Office forritum inn í teikningarnar þínar.

Vektor teikningar

Collabora Office Draw býr til línuteikningar með línum og kúrvum sem skilgreindar eru með stærðfræðilega reiknuðum vigrum. Vigrar lýsa línum, sporbaugum og marghyrningum samkvæmt rúmfræðilegum skilgreiningum.

Búa til þrívíddarhluti

Þú getur búið til einfalda þrívíddarhluti á borð við kassa, kúlur og hólka í Collabora Office Draw, það er meira að segja hægt að stjórna úr hvaða átt ljósgjafinn lýsir.

Hnitanet og stoðlínur

Hnitanet og stoðlínur gefa sjónrænar vísbendingar til hjálpar við að raða hlutum upp í teikningum. Hægt er að láta hluti límast við hnitanet, stoðlínur eða brúnir á öðrum hlutum.

Tengja hluti til að sýna vensl

Þú getur tengt saman hluti í Collabora Office Draw með sérstökum "tengilínum" til að sýna samhengi eða vensl hlutanna. Tengilínur festast við svokallaða festipunkta á teiknuðum hlutum og haldast þær tengdar þótt hlutirnir séu færðir til. Tengilínur eru mikið notaðar við gerð flæðirita, skipurita og tæknilegra skýringamynda.

Birting málsetninga

Tæknilegar teikningar og skýringamyndir sýna oft mál á hlutum í teikningunni. Hægt er að nota málsetningalínur í Collabora Office Draw, til að reikna og birta málsetningar.

Myndasafn

Myndasafnið geymir myndir, myndskeið, hljóð og aðra hluti sem þú getur sett inn í teikningarnar þínar, en einnig í önnur Collabora Office forrit.

Myndskráasnið

Collabora Office Draw getur flutt út í mörg algeng myndskráasnið, svo sem BMP, GIF, JPG, og PNG.

Please support us!